Bílskúrshurðir
Bílskúrs-hurðir
Bílskúrshurðir Héðinshurða henta fjölbreyttri húsagerð. Velja má um mismunandi áferðir á hurðaflekum til að hurðin falli sem best að viðkomandi húsagerð. Til viðbótar við ljósan grunnlit er hægt að fá bílskúrshurðir sérlitaðar. Drifbúnaði og gormum er komið fyrir þar sem best hentar til að fullnýta hæð dyraopsins. Hámarkshæð fyrir bílskúrshurðir er 3250mm og hámarksbreidd 6000mm, sé hurðin stærri er hægt að velja iðnaðarkerfin sem hafa nánast engin takmörk
Standast íslenska veðrið
Bílskúrshurðir okkar hafa sýnt sig og sannað við íslenskar aðstæður, þar sem rignir lárétt, blæs úr öllum áttum og veðrið sveiflast mörgum sinnum á dag. Sterkir og vel einangraðir hurðaflekar, öruggar festingar, þéttingar og brautarkerfi sjá um að mæta náttúruöflunum.
Gott einangrunargildi
Hurðaflekarnir í hurðunum okkar eru með 40 mm þykkum polýúreþan kjarna, sem gerður er úr mörgum samþjöppuðum lögum. Þessi gerð af einangrun tryggir mikla fyllingu og þar með mjög gott einangrunargildi K=0.55 W/m2°C. Hljóðdempun nemur 26 dB.
Vönduð framleiðsla
Grunneiningarnar í bílskúrshurðum eru frá ConDoor, einum þekktasta og öflugasta framleiðanda hurðabúnaðar í Evrópu. Héðins hurðir annast samsetningu, frágang og útfærslu eininganna, varahlutalager og alla þjónustu.
Áferð og litir
Ytra byrði og litir
Áferð
Gluggar
Gluggar gefa fjölbreytta möguleika. Auk þess að hafa hurðina án glugga er hægt að velja úr 3 tegundum af gluggum.
Ávalir gluggar 61×33 cm hver gluggi, svartur kantur.
Kantaðir gluggar 68×37 cm hver gluggi, svartur eða hvítur gúmmíkantur.
Heil gluggaeining í hurð, sama hæð og aðrar hurðaeiningar.
Tæknilegar upplýsingar
Brautir og tilheyrandi festingar eru úr galvanhúðuðu stáli og gerðar fyrir mikið álag. Hjólin sem stýra hurðaflekunum eftir brautunum eru með kúlulegum til að hurðin renni létt og hljóðlega.
Uppsetning og þjónusta
Með öllum bílskúrshurðum fylgja ítarlegar leiðbeiningar um uppsetningu fyrir þá sem vilja annast það sjálfir Leiðbeiningarnar eru með svipuðu formi og IKEA leiðbeiningar og má nálgast þær hér fyrir neðan til að skoða eða prenta út. Einnig er hægt að skoða vídeóleiðningar.
Héðins hurðir annast uppsetningu hurðanna fyrir þá viðskiptavini sem óska þess. Héðins hurðir veita alla þjónustu sem þarf til að tryggja snurðulausa notkun hurðanna og varahlutir eru ávallt til á lager.
Þjónustusamningur
Þjónustusamningur við Héðins hurðir tryggir áhyggjulausa notkun bílskúrshurðanna og aukna endingu þeirra. Í þjónustusamningi er innifalið að yfirfara og stilla hurðirnar reglulega, til að tryggja rekstraröryggi. Þjónustusamningur felur einnig í sér forgang á viðgerðarvinnu.