Gluggar
Gluggakerfi
Héðinshurðir bjóða upp á vandaðar gluggalausnir í bæði áli og PVC – sérsniðnar íslenskum aðstæðum. Við sjáum um allt ferlið, frá ráðgjöf til uppsetningar og tryggjum faglega þjónustu. Að auki bjóðum við reglubundna þjónustu og viðhald á gluggunum til að tryggja langan líftíma og hámarks gæði. Hjá Héðinshurðum færð þú glugga sem sameina gæði og endingu.
Gæði
Hjá okkur færðu glugga sem sameina nútímalega hönnun, frábæra einangrun og langan líftíma.
Ending
Efnið þolir íslenskt veðurfar einstaklega vel og krefst lítils viðhalds.
Orkunýting
Gluggarnir eru með 3 földu gleri til að tryggja sem mesta orkunýtingu.
Álgluggakerfi - Fyrir fagmenn í byggingariðnaði
Sapa og Schüco
Héðinshurðir bjóða upp á álgluggakerfi sem henta vel fyrir byggingaraðila, verktaka og arkitekta sem leita að traustum og sérsniðnum lausnum fyrir fjölbreytt verkefni. Við vinnum með leiðandi framleiðendum á borð við SAPA og Schüco og bjóðum upp á kerfi sem sameina styrk, nútímalega hönnun og framúrskarandi varma- og hljóðeinangrun.
Ráðgjöf
Við leggjum áherslu á vistvænar lausnir og vinnum með kerfi sem styðja við umhverfisvottanir á borð við ISO 14001, BREEAM og LEED.
Með því að velja álgluggakerfi sem framleidd eru með sjálfbærni að leiðarljósi, stuðlar þú að lægra kolefnisspori og betri innivist – án þess að fórna gæðum eða útliti.
Uppsetning
Við sjáum um alla framkvæmd – frá ráðgjöf og hönnun til uppsetningar og eftirfylgni. Við tryggjum að hver lausn sé sérsniðin að verkefninu og uppfylli ströngustu kröfur um gæði, CE-vottanir og byggingastaðla.
Álgluggar eru sérstaklega hentugir fyrir íslenskt veðurfar og krefjast lágmarks viðhalds. Þeir bjóða upp á sveigjanleika í útfærslu, fjölbreytt litaval og möguleika á stórum gluggaflötum sem henta vel í nútímalegri byggingarhönnun.
Fagleg uppsetning glugga – frá hugmynd til verkloka


Við sérhæfum okkur í uppsetningu gluggakerfa fyrir fjölbreytt verkefni. Uppsetningin er framkvæmd af reyndu teymi og öll skref vandlega kortlögð í gæðakerfi okkar. Við tryggjum vandaðan frágang og öryggi í hverju skrefi – allt samkvæmt íslenskum byggingastöðum og CE-vottun.
Viðhald eftir uppsetningu er lykilatriði til að tryggja endingu og virkni glugganna. Við bjóðum upp á reglubundið eftirlit, þéttingar, stillingar og ráðgjöf um umhirðu – allt til að hámarka líftíma og orkunýtingu kerfanna.











Tæknilegar upplýsingar
Brautir og tilheyrandi festingar eru úr galvanhúðuðu stáli og gerðar fyrir mikið álag. Einnig er hægt að fá brautir og festingar úr ryðfríu stáli. Hjólin sem stýra hurðaflekunum eftir brautunum eru með kúlulegum til að hurðin renni létt og hljóðlega.
Fjölbreyttur búnaður býðst til að opna og loka. Þar á meðal má nefna fjarstýringu, veggfasta hurðarofa (upp, niður og stopp), fótósellur sem opna hurð þegar geislinn er rofinn, sjálfvirka lokun eftir ákveðinn tíma, hreyfiskynjara osfrv. Drifbúnaður getur verið handstýring með léttiátaki frá gormum (með eða án keðju) eða rafmótor.
Endalamir eru stillanlegar til að tryggja góða þéttingu milli brautar og hurðar. Sterkur gúmmílisti undir hurð lokar fyrir veðri og vindum á þrjá vegu. Góð hönnun brautakerfis kemur í veg fyrir skrölt.
Plastþéttingar með gúmmíflipum milli stafs og hurðar tryggja afar góða vörn gegn veðri og vindum. Að neðan er sterkur gúmmílisti sem lokar fyrir vatni og vindum á þrjá vegu, þ.e. niður, út og inn. Milli hurðafleka er þéttilisti.
Pólýúreþankjarninn er 40 mm þykkur, samsettur úr mörgum samþjöppuðum lögum, til að tryggja styrk og hátt einangrunargildi. Hljóðdempun nemur 26 dB.